Úrslitakeppni í Bónusdeildum karla og kvenna 2026 - fyrirkomulag KR karfa

30. mars 2026

Nú er skemmtilegasti tími ársins runninn upp, úrslitakeppnir Bónusdeilda karla og kvenna eru að hefjast og við hlökkum til að sjá ykkur öll á Meistaravöllum.

Aðsókn á leiki á þessum árstíma er talsvert meiri en í deildarkeppni og því er mikilvægt að KR-ingar kynni sér vel fyrirkomulag miðasölu á leikina sem framundan eru.

Hér fyrir neðan eru allar helstu upplýsingar varðandi miðasölu til KR-inga í  úrslitakeppni Bónusdeilda karla og kvenna þetta árið.

Árskort og Bakhjarlar

  • Foreldrakort, Ungmennakort og kort fyrir 67 ára og eldri gilda ekki á heimaleiki í úrslitakeppni, aðeins í deild.
  • Árskort fyrir 1, Árskort fyrir 2, Bakhjarl fyrir 1, Bakhjarl fyrir 2, Bakhjarl premium og Fyrirtækjabakhjarl veita aðgang að heimaleikjum í úrslitakeppni.
  • Árskortahafar munu fá sendan hlekk í sms-i  þar sem þau geta sótt sína miða og/eða verslað miða í forsölu. ATH! Sækja þarf miða í gegnum Stubb, ekki er nóg að sýna árskort við innganginn.
  • Kort sem innihéldu hamborgara og drykki í deildarkeppni gilda ekki fyrir veitingum í úrslitakeppni.
  • Því miður verður ekki hægt að vera með sérstök Bakhjarlasæti í úrslitakeppninni.
  • Útileikir: Árskortahafar fá sendan hlekk í forsölu þar sem hægt er að kaupa miða. Takmarkaðir miðar í boði. Fyrstir koma, fyrstir fá. Skv. reglum KKÍ hefur útilið rétt á 30% miðanna sem í boði eru. Ef afgangur er af miðum verða þeir í boði á Stubb.

Iðkendur

  • Iðkendur KR körfu munu þurfa að skrá sig fyrir miðum á heimaleiki í gegnum skráningarform á Abler. Þetta verður auglýst sérstaklega fyrir hvern heimaleik. Takmarkað magn miða fyrir iðkendur verður í boði fyrir hvern leik. Ekki er hægt að mæta á heimaleiki og fá frían aðgang án þess að skrá sig í gegnum formið.

Sala miða á heimaleiki KR í úrslitakeppni 25-26:

Miðum verður úthlutað eftir þessari forgangsröðun:


1.      Forsala fyrir árskortahafa og Bakhjarla

2.      Forsala fyrir foreldra iðkenda og þá sem eru á póstlista KR körfu, skráning hér.

3.      Almenn sala til KR-inga á Stubb á þeim miðum sem eftir eru.



Ef einhverjar spurningar vakna er ykkur velkomið að hafa samband við skrifstofu körfuknattleiksdeildar KR.

Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með á samfélagsmiðlum KR körfu. Sjáumst á Meistaravöllum! Áfram KR!