17. júní í KR!

16. júní 2025

KR endurtekur leikinn frá því í fyrra og verður með fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu á 17. júní!
Dagskráin hefst kl. 10:00 og lýkur 13:00.


Það verða hoppukastalar, battavellir og körfuboltaþrautir í húsinu. Þá verður einnig hægt að lita inn í félagsheimili og fá sér candyfloss, popp, vöfflur og kaffi. Arnþór Ingi, fyrrum leikmaður knattspyrnudeildar KR og tónlistarmaður mun svo mæta 11:30 og taka nokkur vel valin lög fyrir börnin!


Byrjum daginn í KR með vinum, nágrönnum og liðsfélögum!
ÁFRAM KR!!