Sex ungir KR-ingar með unglingalandsliðshópi til Gautaborgar

21. júní 2025

Guðbjörg Vala, Helena, Lúkas, Marta, Viktor og Þórunn til Gautaborgar

Sex ungir KR-ingar eru í hópi um tuttugu leikmanna úr unglingalandsliðshópnum, sem eru á leið til Gautaborgar. Hópurinn heldur út 22. júní og verður úti í viku.

KR-ingarnir í hópnum eru Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir, Lúkas André Ólason, Marta Dögg Stefánsdóttir, Viktor Daníel Pulgar og Þórunn Erla Gunnarsdóttir.


Krakkarnir taka þátt í æfingarbúðum fyrstu fjóra dagana hjá Askims BTK, klúbbi Peters Nilsson, fráfarandi landsliðsþjálfara. Að því loknu munu þau keppa hjá klúbbi í öðru úthverfi Gautaborgar og nefnist það mót Lekstorps Sommarpool 2025, og stendur í þrjá daga. Aðalþjálfari í ferðinni verður Bjarni Þ. Bjarnason frá HK og aðrir þjálfarar verða KR-ingurinn Karl Andersson Claesson og Bæring Jón Breiðfjörð Guðmundsson frá Garpi.


Forsíðumynd af hópnum tekin af vef BTÍ.