Eiríkur Logi fékk brons í opnum flokki karla á Stórmóti HK

Eiríkur Logi Gunnarsson fékk bronsverðlaun í opnum flokki karla á Stórmóti HK. Mótið fór fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi laugardaginn 14. nóvember.

Eiríkur Logi tapaði naumlega 3-4 í undanúrslitum fyrir Magnúsi Gauta Úlfarssyni úr BH, en Magnús sigraði á mótinu.