Árgangamót KR körfu 2026
2. febrúar 2026

Árgangamót körfuknattleiksdeildar KR verður haldið laugardaginn 28. febrúar næstkomandi á Meistaravöllum. Matur og lokahóf inni í félagsheimili um kvöldið. Skemmtiatriði og verðlaunaafhending.
Fyrirkomulag:
- Keppt er 5 á 5 bæði í karla- og kvennaflokki á fullum velli.
- Hvert lið má hafa eins marga varamenn og þau vilja.
- Einnig má skrá fleiri en eitt lið til leiks fyrir hvern árgang.
- Það má skeyta árgöngum saman ef ekki tekst að manna árgang.
- Fyrst er keppt í riðlakeppni og svo verða úrslitaleikir.
- Aldurstakmark: yngsti árgangur er 2006
Skráning:
- Fyrirliði hvers liðs skráir árganginn til leiks og millifærir fyrir allt liðið.
- Sendið tölvupóst á Gunnhildi Báru, verkefnastjóra KR körfu: gunnhildurbara@kr.is, með fjölda og nöfnum leikmanna ásamt því hvaða árgangi þið eruð í
- Millifærsla: bankareikningur 0137-26-000045, kennitala: 510987-1449
- Skráningarfrestur er til og með 23. Febrúar.
Verð:
7.500 krónur á mann, innifalið í því er þátttökugjald og hamborgara- og pizzumáltíð á lokahófi. Hressandi drykkir til sölu á góðu verði á lokahófi.
Hvetjum öll til að taka þátt. Áfram KR!






