Bjartur í úrvalslið Taekwondosambandsins
23. janúar 2026
Taekwondo landsliðsþjálfari Íslands í formum, Allan Olsen, valdi nýtt úrvalslið sem fær leiðsögn og þjálfun hjá landsliðsþjálfara á árinu. Ellefu einstaklingar voru valdir úr stórum hópi í liðið eftir heilan dag af úrtökuæfingum og viðtölum. Þetta er allt efnilegt ungt fólk sem stefnir hátt og mun reyna að komast í landsliðið í framtíðinni. Efnilegasti poomsae keppandi KR, Bjartur Aðalsteinsson var einn þeirra sem komst í liðið og mun því æfa með landsliðinu á þessu ári.
Eiga KR-ingar því núna bæði fulltrúa í úrvalsliðunum í formum og bardaga. Við óskum Bjarti til hamingju með þennan áfanga.







