C-lið KR Íslandsmeistari í 2. deild

Ásta Urbancic • apr. 13, 2024

A-lið KR í 2. sæti í 1. deild karla

C-lið KR sigraði í 2. deild kvenna og varð liðið fyrsti Íslandsmeistarinn í þessari deild. Liðið skipuðu þær Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Natalía Marchíniková og Þórunn Erla Gunnarsdóttir (á myndinni), líka Helena Árnadóttir og Marta Dögg Stefánsdóttir.

A-lið KR tapaði úrslitaleiknum í 1. deild karla fyrir A-liði Víkings og lauk leiknum með 3-2 sigri Víkinga. Íslandsmeistarinn Ingi Darvis Rodriguez reyndist KR-ingum erfiður, en hann vann báða leiki sína. Sigra KR unnu þeir Ellert Kristján Georgsson sem vann Magnús Jóhann Hjartarson og Norbert Bedo, sem lagði Kára Mímisson. Auk þeirra lék Pétur Gunnarsson úrslitaleikinn fyrir KR.

Share by: