Eyþór Aron Wöhler til KR

14. apríl 2024

Sóknarmaðurinn Eyþór Aron Wöhler (2002) hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR. Eyþór er uppalinn Mosfellingur en kemur til KR frá Breiðablik. Eyþór á fimm leiki með U21 landsliði Íslands.


Eyþór er frábær viðbót við hópinn og erum við spennt að fylgjast með honum í KR treyjunni í sumar.


Við bjóðum Eyþór velkominn í KR.