Ellert sigraði í karlaflokki á Garpsmótinu

1. maí 2025

Dalmar og Greta sigruðu í sínum aldursflokki

Ellert Kristján Georgsson sigraði í opnum flokki karla á Garpsmótinu, sem fram fór að Laugalandi í Holtum laugardaginn 26. apríl. Eiríkur Logi Gunnarsson varð annar og Norbert Bedö fékk brons, ásamt Pétri Marteini Urbancic Tómassyni úr BH.


Greta Sólrún Mclaughlin Svansdóttir vann flokk telpna 13 ára yngri og lagði m.a. nýbakaðan Íslandsmeistara í flokknum. Emma Hertervig varð fjórða.


Það var nýmæli að keppt var í flokki 9 ára og yngri og vann Dalmar Bragi Aronsson strákaflokkinn.