Fyrsta mót hjá 7.fl í handbolta á árinu
4. febrúar 2026
Helgina 23. - 25. janúar fóru strákarnir í 7.flokkk Gróttu/KR á sitt fyrsta mót á árinu. Mótið var haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði og skemmtu strákarnir sér konunglega! Næsta mót verður í byrjun mars upp í Kórnum í Kópavogi.
Strákarnir í 7. flokki æfa í Íþróttahúsi Hagaskóla á mánudögum og miðvikudögum klukkan 15:15-16:15. Það eru allir strákar velkomnir að koma og prófa.








