Guðbjörg Vala sigraði í þremur flokkum í Hróarskeldu
7. febrúar 2026
Karl og Viktor sigruðu í einum flokki hvor
Hópur leikmanna frá Borðtennisdeild KR tók þátt í Spar Nord Roskilde Cup í Hróarskeldu í Danmörku um síðustu mánaðarmót. Á mótinu var keppt í fjölmörgum aldursflokkum og styrkleikaflokkum.
Leikmenn KR voru þau Anna Marczak, Eiríkur Logi Gunnarsson, Ellert Kristján Georgsson, Gestur Gunnarsson, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Guðrún Gestsdóttir, Helena Árnadóttir, Hrefna Namfa Finnsdóttir, Karl A. Claesson, Lúkas André Ólason, Marta Dögg Stefánsdóttir, Pétur Xiaofeng Árnason, Viktor Daníel Pulgar og Þórunn Erla Gunnarsdóttir. Auk leikmanna var Gunnar Skúlason með hópnum.
Auk KR-inganna léku þrír aðrir íslenskir leikmenn á mótinu.
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, sigraði í þremur flokkum á mótinu, í flokkum Dame Elite, Dame U21 (þ.e. undir 21 árs) Elite og Dame Junior Elite. Dame Elite er sterkasti kvennaflokkurinn á mótinu en Guðbjörg Vala er aðeins 15 ára gömul.
Karl A. Claesson, sigraði í Herre Klasse 3.
Viktor Daníel Pulgar sigraði í flokki Herre U21 C.
Lúkas André Ólason varð í 2. sæti í flokki Drenge Elite, í 5.-8. sæti í flokki Herre U21 Elite og í 9.-16. sæti í flokki Herre Klasse 2.
Helena Árnadóttir varð í 4. sæti í flokki Dame Elite og 6. sæti í flokki Dame U21 Elite.
Eiríkur Logi Gunnarsson varð í 3.-4. sæti í flokki Åben A og hafnaði í 5.-8. sæti í flokki Herre U21 Elite.
Marta Dögg Stefánsdóttir varð í 3.-4. sæti í flokki Dame Klasse 1.
Gestur Gunnarsson hafnaði í 5.-6. sæti í flokki Åben A og varð í 9.-16. sæti í flokki Herre Klasse 1.
Ellert Kristján Georgsson varð í 5.-8. sæti í flokki Åben B og í 9.-16. sæti í flokki Herre Elite og Herre Klasse 1.
Guðrún Gestsdóttir hafnaði í 5.-8. sæti í flokki Herre Klasse 7.
Þórunn Erla Gunnarsdóttir varð í 9.-16. sæti í flokki Herre Junior D.
Á forsíðumyndinni má sjá bróðurpart KR-hópsins og á hinum myndunum eru þeir Karl og Viktor.








