Guðbjörg Vala sigraði á Lokamóti BTÍ
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir sigraði í kvennaflokki á lokamóti BTÍ og Gullfisks, sem fór fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi föstudaginn 8. maí. Til keppni var boðið 8 stigahæstu leikmönnunum í karla- og kvennaflokki að loknum fjórum mótum í mótaröðinni á keppnistímabilinu. KR átti þrjár efstu í kvennaflokki, því Þórunn Erla Gunnarsdóttir varð í 2. sæti og Helena Árnadóttir í 3. sæti.
KR átti einn verðlaunahafa í karlaflokki, því Lúkas André Ólason varð fjórði.
Verðlaunahafar:
Opinn flokkur kvenna
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
2. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR
3. Helena Árnadóttir, KR
4. Magnea Ólafs, BM
Opinn flokkur karla
1. Magnús Jóhann Hjartarson, BH
2. Óskar Agnarsson, HK
3. Kristján Ágúst Ármann, BH
4. Lúkas André Ólason, KR







