KR-ingar sigursælir á Íslandsmóti öldunga
Guðrún Gestsdóttir varð þrefaldur Íslandsmeistari
Íslandsmót öldunga var haldið í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 9. maí.
Keppt var í 10 flokkum en í nokkrum tilfellum var aldursflokkum slegið saman til að keppendur fengju fleiri leiki. Verðlaun voru síðan veitt í samræmi við aldursflokka keppenda, þannig að alls voru veitt verðlaun fyrir 13 flokka.
Guðrún Gestsdóttir varð þrefaldur meistari á mótinu, í einliðaleik, 50-59 ára, í tvíliðaleik 50-59 ára með Guðrúnu Ólafsdóttur og í tvenndarleik 40 ára og eldri með Viliam Marchiník. Sigþrúður Ármann og Sigurlína H. Guðbjörnsdóttir unnu tvö gull, Sigþrúður í einliðaleik 40-49 ára og Sigurlína í einliðaleik 60-69 ára og saman sigruðu þær í tvíliðaleik 40-49 ára þar sem Sigurlína lék niður fyrir sig í aldri.
Guðmundur Örn Halldórsson varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik karla 60-69 ára með Holger Kuehne frá Selfossi.
Verðlaunahafar í öllum flokkum:
Einliðaleikur kvenna 40-49 ára
1. Sigþrúður Ármann, KR
Einliðaleikur karla 40-49 ára
1. Rubén Illera López, Selfossi
2. Michael May-Majewski, BR
3. Stefán Orlandi, Selfossi
4. Viliam Marciník, KR
Einliðaleikur kvenna 50-59 ára
1. Guðrún Gestsdóttir, KR
2. Anna Sigurbjörnsdóttir, KR
3. Guðrún Ólafsdóttir, KR
Einliðlaleikur karla 50-59 ára
1. Örn Þórðarson, HK
2. Piotr Herman, BR
3. Sigurjón Ólafsson, HK
4. Reynir Georgsson, HK
Einliðaleikur kvenna 60-69 ára
1. Sigurlína H. Guðbjörnsdóttir, KR
Einliðaleikur karla 60-69 ára
1. Holger Kuehne, Selfossi
2. Jón Gunnarsson, BR
3. Amid Derayat, HK
4. Bjarni Gunnarsson, KR
Einliðaleikur karla 70 ára og eldri
1. Pétur Stephensen, Víkingi
2. Rúnar Filipp Sigurðsson, KR
3. Sigbjörn G. Ingimundarson, Ping pong Parkinson Iceland
Tvíliðaleikur kvenna 40-49 ára
1. Sigþrúður Ármann/Sigurlína H. Guðbjörnsdóttir, KR
Tvíliðaleikur karla 40-49 ára
1. Piotr Herman/Michal May-Majewski, BR
2. Rubén Illera López/Stefán Orlandi, Selfossi
3. Árni Árnason/Jóhann Ingi Benediktsson, KR
Tvíliðaleikur kvenna 50-59 ára
1. Guðrún Gestsdóttir/ Guðrún Ólafsdóttir, KR
Tvíliðaleikur karla 50-59 ára
1. Reynir Georgsson/Örn Þórðarson, HK
2. Guðmundur Ragnar Guðmundsson/Sigurjón Ólafsson, Víkingur/HK
Tvíliðaleikur karla 60-69 ára
1. Guðmundur Örn Halldórsson/ Holger Kuehne, KR/Selfoss
2. Jón Gunnarsson/Sighvatur Karlsson, BR/Víkingur
3. Bjarni Gunnarsson/Finnur Hrafn Jónsson, KR
Tvenndarleikur 40 ára og eldri
1. Viliam Marciník/Guðrún Gestsdóttir, KR
2. Bjarni Gunnarsson/Anna Sigurbjörnsdóttir, KR
3.-4. Finnur Hrafn Jónsson/Sigurlína H. Guðbjörnsdóttir, KR
3.-4. Guðmundur Örn Halldórsson/Guðrún Ólafsdóttir, KR


















