Gull í Póllandi
22. september 2025

Íþróttamaður KR, taekwondo kappinn Guðmundur Flóki Sigurjónsson, fór til Póllands nú um helgina á sterkt bardagamót – Polish Open. Keppendur voru um 1000 á mótinu. Guðmundur Flóki var í 18 manna flokki, undir 80 kg senior, og taldist tíundi sterkasti keppandinn í flokknum út frá stigafjölda á heimslista, því sat hann hjá í fyrstu umferð.
Í 16 manna úrslitum mætti hann silfurverðlaunahafa frá síðasta heimsmeistaramóti í junior flokki og sigraði örugglega í tveimur lotum. Næst mætti hann mjög sterkum úkraínskum keppanda sem er núna í 9. sæti heimslistans og sigraði 2-1 og komast þannig inn í undanúrslit. Þar mætti hann Azerbajan, sigraði og var þar með kominn í sjálfan úrslitabardagann.
Úrslitabardaginn var á móti Króatískum keppanda, Oscar Kovacic sem var skráður sem sterkasti keppandinn í flokknum og er í fimmta sæti heimslistans. Flóki vann fyrstu lotu en Króatinn kom til baka í annarri lotu og jafnaði metinn. Úrslitabardagi og úrslitalota, hér koma sterkar taugar að góðum notum! Guðmundur Flóki sýndi hvað í honum býr og tryggði sér öruggan sigur í síðustu lotunni og gullið komið í hús.
Við óskum gulldregnum innilega til hamingju og óskum honum um leið góðs gengis á HM sem fer fram í Kína í næsta mánuði!