Karl og Guðbjörg Vala borðtennisfólk KR

7. júní 2025

Viðurkenningar Borðtennisdeildar KR afhentar á uppskeruhátíð 4. júní

Borðtennisdeild KR hélt uppskeruhátíð í Íþróttahúsi Hagaskóla þann 4. júní. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir síðasta keppnistímabil, farið í borðtennisleiki og grillaðar pylsur.


Tilkynnt var að Karl Andersson Claesson og Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir hefðu verið valin borðtennisfólk KR 2025. Þetta er í fyrsta skipti sem þau eru valin.



Ýmsar aðrar viðurkenningar voru veittar:

Álfrún Milena Kvaran - metnaður

Baldvin Páll Henrysson - bjartasta vonin

Dalmar Bragi Aronsson - áhugasemi og framfarir

Finnur Hrafn Jónsson - fastur fyrir

Greta Sólrún Mc Laughlin Svansdóttir - framfarir

Guðrún Gestsdóttir - reddarinn

Luca De Gennaro Aquino - besta hárið

Lúkas André Ólason - framfarir

Viktor Daníel Pulgar - hugarfar


Á mynd hér fyrir neðan má svo sjá þjálfara deildarinnar í vetur, en Eirík Loga Gunnarsson vantar á myndina.