KR-ingur júní mánaðar

Aðalstjórn KR byrjar með nýjung, KR-ingur mánaðarins!


KR-ingur mánaðarins er sá einstaklingur sem hefur lagt sitt af mörkum til félagsins eða verið félaginu til sóma utan skipulagðra æfinga, keppna eða launaðra vinnu á vegum KR. Einstaklingurinn getur verið iðkandi, starfsmaður, forráðamaður, sjálfboðaliði eða stuðningsmaður, þvert á deildir félagsins. 


KR-ingur júní mánaðar er Þorsteinn Rúnar, vallarstjóri KR, en hann smíðaði boltastand fyrir meistaraflokk kvenna í fótbolta í sínum frítíma þar sem honum fannst vanta boltastand fyrir kvennaleiki. Áður var boltastandur Bestu deildar notaður í öllum kvennaleikjum en liðið spilar í Lengjudeild.


Starfsfólk aðalstjórnar valdi KR-ing júní mánaðar en framvegis verður hægt að senda inn tilnefningar: senda inn tilnefningu. Allar tilnefningar verða skoðaðar en krafa er gerð um rökstuðning. Starfsfólk aðalstjórnar fer yfir tilnefningar í lok hvers mánaðar og birtir KR-ing mánaðarins á miðlum sínum og heimasíðu félagsins. KR-ingur mánaðarins hlýtur gjafabréf á Flatey Pizza í þakkarskyni!