KR vann flesta Íslandsmeistaratitla og fékk flest verðlaun á Íslandsmotum
Helena Árnadóttir vann flesta titla, fimm talsins
KR vann flesta Íslandsmeistaratitla allra félaga keppnistímabilið 2025-2026, 18,5 talsins. BH og Víkingur komu næst með 7 titla hvort félag. KR vann líka flesta titla keppnistímabilið 2024-2025. KR vann fjóra titla í fullorðinsflokkum, átta í unglingaflokkum og 6,5 í öldungaflokkum.
Helena Árnadóttir vann flesta titla einstaklinga eða fimm alls. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir vann fjóra titla og Guðrún Gestsdóttir og Lúkas André Ólason unnu þrjá titla hvort.
KR fékk langflest verðlaun allra félaga eða 67,5, af 177 verðlaunum sem voru afhent. HK fékk 22,5 verðlaun, BH 22, Garpur 17,5 og Víkingur 14.
Á vef BTÍ, www.bordtennis.is má sjá nánari upplýsingar um skiptingu titla og verðlauna og Íslandsmeistaratal frá upphafi.






