Lið fyrir liði - styrkjum Gigtarfélagið
17. mars 2026
KR - Njarðvík 22. mars kl. 19:15

Körfuknattleiksdeild KR lætur gott af sér leiða með styrktarleik til stuðnings Gigtarfélags Íslands. Leikurinn fer fram sunnudaginn 22. mars þegar að KR tekur á móti Njarðvík í Bónusdeild kvenna.
Gigtarfélag Íslands vinnur ötult starf við að bæta lífsgæði gigtarsjúklinga, stuðla að fræðslu og styðja við félagsfólk og aðstandendur. Gigtarsjúkdómar geta hrjáð fólk á öllum aldri, ekki einungis eldra fólk, en 75% gigtarsjúklinga eru konur. Kvennalið KR leggur málefninu lið til að efla umræðuna og safna styrktarfé sem rennur beint til Gigtarfélagsins.
Sérstakir góðgerðabolir verða til sölu í takmörkuðu upplagi og því gefst stuðningsfólki og öðrum velunnurum tækifæri til að tryggja sér einstakan KR bol og um leið styrkja gott málefni. Allur ágóði sölunnar og miðasölu á leikinn mun renna til Gigtarfélags Íslands.
Nánari dagskrá auglýst síðar. Takið daginn frá!
Sjá nánar um viðburðinn hér: https://www.facebook.com/events/1993040531625985/






