Helena Íslandsmeistari í 1. flokki og Þórunn í 2. flokki

14. mars 2026

KR vann ferfalt í 1. flokki kvenna og tvöfalt í 2. flokki kvenna

Helena Árnadóttir varð Íslandsmeistari í 1. flokki kvenna annað árið í röð á Íslandsmótinu í borðtennis. KR sigraði ferfalt í flokknum, því Marta Dögg Stefánsdóttir varð í 2. sæti, og Anna Marczak og Þórunn Erla Gunnarsdóttir í 3.-4. sæti.


Þórunn Erla Gunnarsdóttir varð Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna og Marta Dögg Stefánsdóttir varð önnur. Í 3.-4. sæti voru Garpsstúlkurnar Guðný Lilja Pálmadóttir og Lea Mábil Andradóttir.


Elvar Pierre Kjartansson fékk einu verðlaun KR í karlaflokki, þegar hann varð í 3.-4. sæti í 1. flokki karla. Elvar tapaði í undanúrslitum fyrir Heiðari Leó Sölvasyni úr BH, sem varð Íslandsmeistari.


Að þessu sinni var Íslandsmótinu skipt í tvennt, og keppt í 1. og 2. flokki laugardaginn 14. mars í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Keppt verður í meistaraflokki helgina 21.-22. mars.


Úrslit úr öllum leikjum á mótinu má sjá hér: Íslandsmót 1. & 2.flokki 2026 | Tournamentsoftware.com