Gullmót KR 2026

17. febrúar 2026

Gullmót KR fór fram í nítjánda skipti í laugardalslaug 13-15 febrúar, um er að ræða fjölmennasta sundmót ársins og voru mikil fagnaðarlæti og fjör í lauginni.


Alls tóku þátt 426 keppendur frá 20 íþróttafélögum

Það voru teknar 2050 stungur og synt 63 boðsund yfir helgina.


KR – superchallenge fór fram á laugardagskvöldið en það er gífurlega skemmtileg útsláttar keppni í 50 metra flugsundi með ljósasýningu, tónlist og tilheyrandi látum


Sigurvegarar KR Superchallenge Karla voru:

1. Sæti Birnir Freyr Hálfdánarsson frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hann synti á tímanum 25.11 sekúndum

2. Sæti Rynhardt Steyn frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hann synti á tímanum 25.82 sekúndum

3. sæti Hólmar Grétarsson frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hann synti á tímanum 25.99 sekúndum


Sigurvegarar KR Superchallenge kvenna voru:

1.  Sæti Vala Dís Cicero  frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hún synti á tímanum 27.54  sekúndum

2.  Sæti Ylfa Lind Kristmannsdóttir frá Sunddeild Ármanns en hún synti á tímanum 28.21 sekúndum

3.  Sæti Nadja Djurovic frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hún synti á tímanum 28.48 sekúndum


Óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn


Það er ekki hægt að halda sundmót án aðstoðar sjálfboðaliða sem gengdu ýmsum störfum um helgina og viljum við þakka þeim innilega fyrir þeirra frábæru störf


Myndir af Gullmóti KR 2025 verða birtar inná facebook síðu KR og facebook síðu Gullmótsins

https://www.facebook.com/krsund

https://www.facebook.com/gullmot