KR bikarmeistari í borðtennis 2026
17. febrúar 2026

A-lið KR varð bikarmeistari í borðtennis 2026, eftir 4-2 sigur á liði Víkings í úrslitaleik. Leikið var í TBR-húsinu í Laugardal. Í sigurliði KR-A voru Lúkas André Ólason og systkinin Guðbjörg Vala og Pétur Gunnarsbörn.
Í undanúrslitum lagði KR-A - KR-F 4-0 og Víkingur vann KR-B 4-2.
KR átti sex lið í keppninni og má sjá keppendur KR á myndinni inni í fréttinni.






