Guðbjörg Vala sigraði á lokamóti BTÍ

17. maí 2025

Meirihluti keppenda á lokamóti mótaraðarinnar úr KR

Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir sigraði á lokamóti mótaraðar BTÍ og Icegroup, sem fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði föstudaginn 16. maí.

Til mótsins var boðið átta stigahæstu leikmönnunum í karla- og kvennaflokki að loknum þremur mótum á mótaröðinni í vetur.


Guðbjörg Vala var stigahæst að loknum mótum vetrarins og sigraði Halldóru Ólafs frá Selfossi 4-2 í úrslitaleiknum. KR átti fleiri verðlaunahafa, því Helena Árnadóttir varð í 3. sæti og Guðrún Gestsdóttir í 4. sæti. Marta Dögg Stefánsdóttir féll úr leik í 8 manna úrslitum.


Í karlaflokki varð Ellert Kristján Georgsson í 3. sæti, en hann tapaði í undanúrslitum, en vann Þorberg Frey Pálmarsson úr BH í leik um 3. sætið. Eiríkur Logi Gunnarsson, Gestur Gunnarsson og Pétur Gunnarsson höfnuðu í 5.-8. sæti.


Aldís Rún Lárusdóttir og Norbert Bedö voru meðal keppenda sem höfðu unnið sér keppnisrétt á lokamótinu en sáu sér ekki fært að taka þátt.


Myndir frá Borðtennissambandi Íslands.