Sumarnámskeið KR í frjálsum 2025

19. maí 2025

Sumarnámskeið KR í frjálsum er fjögurra vikna námskeið fyrir börn á aldrinum 7 - 10 ára og 11 - 15 ára.


Börn 7 – 10 ára, 2. – 26. júní 2025

Börn 7 – 10 ára æfa þrisvar sinnum í viku. Á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum í Vesturbænum frá kl. 15:00 – 16:00. Hittumst við Frostaskjól og nýtum okkur hin ýmsu svæði og skólalóðir þar sem við munum fara í leiki, æfa þær greinar sem hægt er miðað við aðstæður og hafa gaman saman.

Námskeiðagjöld eru 16.000,- kr.


Börn 11 – 15 ára, 2.-27. júní 2025 (lengur ef áhugi er fyrir hendi)

Börn 11 – 15 ára æfa þrisvar sinnum í viku. Á mánudögum í Vesturbænum þar sem við nýtum okkur ýmis svæði þar í kring, og á þriðjudögum og fimmtudögum á Kastvelli við Laugardalsvöll, Laugardalshöll eða á ÍR vellinum.

Æfingartímar eru kl. 16:30 – 17:45.

Námskeiðagjöld eru 20.000,- kr.


Fyrirspurnir sendast á sigrun1717@gmail.com eða í síma 895-4452.

Allar skráningar og greiðslur fara fram á Sportabler í gegnum KR síðuna.

ATH! Allar skráningar þurfa að berast áður en námskeið hefst. Námskeiðið verður aðeins haldið ef næg þátttaka næst.

Vonumst til að sjá sem flesta!


SUMARKVEÐJUR

Þjálfarar frjálsíþróttadeildar KR

Sigrún og Tóta