VIT-HIT leikarnir
Það var mikið fjör um helgina þegar sunddeild KR tók þátt á VIT-HIT leikunum á akranesi.
KR-ingar stóðu sig frábærlega og var mikið um bætingar hjá okkar fólki
Helstur úrslit:
Atli Borg náði 3 sæti í 50m skriðsundi 11 ára og yngri
Birna Rannveig Gunnarsdóttir náði 2 sæti í 50m skriðsundi og 3 sæti í 50m baksundi 11 ára og yngri
Bríet Björk Jóhannsdóttir náði 3 sæti í 100m skriðsundi 11-13 ára
Viktoría Vasile náði 2 sæti í 50m skriðsundi og 3 sæti í 100m skriðsundi í flokki 14-15 ára
Einnig náði Emilý Sóley P.M. Eysteinsdóttir 5 besta tímanum í 100m bringusundi hjá 14 ára stelpum í sögu KR
Inga Aniela Czurylo náði lágmarki inná aldursflokkameistara mótið í sundi sem er haldið í Reykjanesbæ 19-21 Júní.
En KR mun keppa á AMÍ sem partur af sameinuðu liði Reykjavíkur.
Áfram KR!!!






