SUMARNÁMSKEIÐ KR Í FRJÁLSUM 2026
Sumarnámskeið KR í frjálsum íþróttum fer fram 1. - 26. júní 2026 fyrir börn 7 - 10 ára og 11 - 15 ára.
Börn 7 - 10 ára
Æfingar fara fram á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum í Vesturbænum. Hópurinn hittist við Frostaskjól og nýtir sér hin ýmsu svæði og skólalóðir. Þar verður farið í leiki og þær greinar æfðar sem hægt er að æfa miðað við aðstæður.
Æfingartímar eru kl. 15:00 – 16:00.
Námskeiðagjöld eru 20.000,- kr.
Börn 11 - 15 ára
Æfingar fara fram þrisvar sinnum í viku. Á mánudögum verða æfingar í Vesturbænum þar sem ýmis svæði verða nýtt þar í kring. Á þriðjudögum og fimmtudögum verða æfingar á Kastvelli við Laugardalsvöll, Laugardalshöll eða á ÍR vellinum.
Æfingartímar eru kl. 16:30 – 17:45.
Námskeiðagjöld eru 26.000,- kr.
Fyrirspurnir sendast á sigrun1717@gmail.com eða í síma 895-4452. Allar skráningar og greiðslur fara fram á Sportabler, smelltu hér til að skrá iðkanda.
ATH! Allar skráningar þurfa að berast áður en námskeið hefst. Námskeiðið verður aðeins haldið ef næg þátttaka næst.
Sumarkveðjur,
Þjálfarar frjálsíþróttadeildar KR
Sigrún og Tóta






