Ný stjórn kosin á Aðalfundi KR

Aðalfundur KR var haldinn fimmtudaginn 30. apríl við frábæra mætingu KR-inga. Virkilega gaman að sjá hversu margir voru mættir.

Ný stjórn var kosin og lítur hún svona út:

 

Þórhildur Garðarsdóttir situr áfram sem formaður félagsins.

Í framboði til stjórnar voru Árni Geir Magnússon, Hilmar Gunnarsson, Jón Bjarni Kristjánsson, Magnús Ingimundarson, Rósa Hrönn Árnadóttir og Guðmundur Óskar Pálsson og mynda þau stjórnina.

 

Þrjú framboð bárust í varastjórn og þar munu sitja Einar Baldvin Árnason, Guðrún Norðfjörð og Gunnar Sverrisson.

 

Hörður Felix Harðarson gengur úr stjórn og þökkum við honum kærlega fyrir sinn tíma.


ÁFRAM KR!