KR TV komið í loftið – ný miðstöð fyrir allt KR efni

KR hefur nú formlega sett í loftið nýja efnisveitu félagsins, KR TV, sem er aðgengileg á slóðinni tv.kr.is.
Með KR TV er stigið stórt skref í átt að því að færa stuðningsmönnum enn nær liðinu og starfinu innan félagsins. Þar verður að finna fjölbreytt og vandað efni sem spannar allt frá leikjum meistaraflokka til yngri flokka, ásamt skemmtilegu og persónulegu efni úr starfi félagsins.
📺Á KR TV geta stuðningsmenn meðal annars nálgast:
- Efni eftir hvern einasta leik
- Myndefni bak við tjöldin
- Viðtöl við leikmenn og þjálfara
- Sérþætti og annað skemmtiefni
- Efni tengt yngri flokkum félagsins
Þegar er komið inn töluvert magn af efni frá yfirstandandi tímabili, þar á meðal samantektir og stemningsmyndbönd frá leikjum. Má þar nefna glæsilegan sigur karla liðsins gegn Val (1–4), sem og efni frá fyrsta leik kvennaliðsins í deildinni í sumar.
KR TV verður áfram uppfært reglulega með nýju efni eftir hvern leik og öðrum tengdum þáttum sem veita innsýn inn í líf og starf KR.
Stuðningsmenn eru hvattir til að skrá sig og fylgjast með frá fyrsta degi á:
👉 https://tv.kr.is






