Ingi Þór er nýr yfirþjálfari sunddeildar

Ingi Þór Ágústsson nýr yfirþjálfari Sunddeildar KR Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Ingi Þór Ágústsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari Sunddeildar KR.
Ingi Þór kemur til okkar með yfir þrjátíu ára reynslu af sundþjálfun og víðtæka reynslu af uppbyggingu sundstarfs. Hann hefur meðal annars gegnt starfi yfirþjálfara hjá Vestra, Breiðabliki og Sundfélaginu Óðni, auk þess að hafa þjálfað hjá öðrum sundfélögum. Hann þekkir jafnframt KR vel frá fyrri tíð. Reynsla Inga Þórs nær langt út fyrir bakkann. Hann hefur setið í stjórn Sundsambands Íslands og landsliðsnefnd SSÍ, auk þess að hafa setið um árabil í framkvæmdastjórn ÍSÍ.
Á Sundþingi 2025 var hann sæmdur gullmerki SSÍ fyrir margvísleg störf í þágu sundíþróttarinnar á Íslandi. Með ráðningu Inga Þórs tekur Sunddeild KR mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar, með fagmennsku, stöðugleika og metnað að leiðarljósi.
Við hlökkum mikið til samstarfsins og bjóðum Inga Þór hjartanlega velkominn til KR.
Áfram KR!






