Lúkas og Guðbjörg Vala sigruðu í meistaraflokki á Hjálmarsmóti KR

Luca sigurvegari í opnum flokki B

Lúkas André Ólason sigraði í meistaraflokki elite í karlaflokki og Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir í meistaraflokki elite í kvennaflokki á Hjálmarsmóti KR, sem fram fór í Íþróttahúsi Hagaskóla 3.-4. október. Þetta er fyrsti sigur Lúkasar í meistaraflokki. Hann er fæddur árið 2011 og Guðbjörg Vala er fædd árið 2010, svo það er ljóst að framtíðin er björt hjá KR.

KR fékk öll verðlaunin í meistaraflokki kvenna, því Helena Árnadóttir varð í 2. sæti, Þórunn Erla Gunnarsdóttir í 3. sæti og Marta Dögg Stefánsdóttir í 4. sæti.

Luca de Gennaro Aquino sigraði í opnum flokki B, sem er fyrir leikmenn sem eru með færri en 2000 stig.

Gestur Gunnarsson fékk brons í meistaraflokki karla. KR átti verðlaunahafa í fleiri flokkum, eins og sjá má á listanum yfir verðlaunahafa hér að neðan.


Verðlaunahafar:

 

Meistaraflokkur karla elite

1. Lúkas André Ólason, KR

2. Óskar Agnarsson, HK

3.-4. Magnús Jóhann Hjartarson, BH

3.-4. Gestur Gunnarsson, KR

 

Meistaraflokkur kvenna elite

1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR

2. Helena Árnadóttir, KR

3. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR

4. Marta Dögg Stefánsdóttir, KR

 

Opinn flokkur B (undir 2000 stig)

1. Luca De Gennaro Aquino, KR

2. Ibrahim Hossam Almassri, BR

3.-4. Anton Óskar Ólafsson, Selfoss

3.-4. Michał May-Majewski, BR

 

Opinn flokkur C (undir 1500 stig)

1. Piotr Rajkiewicz, HK

2. Stefán Orlandi, Selfoss

3.-4. Magnús Birgir Kristinsson, Víkingi

3.-4. Piotr Herman, BR

 

Stelpur og strákar undir 16 ára (fædd 2011 eða fyrr)

1. Adam Lesiak, Víkingi

2. Guðmundur Ólafur Bæringsson, Garpi

3.-4. Benjamín Bjarki Magnússon, BH

3.-4. Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH

 

Stelpur og strákar undir 12 ára (fædd 2015 eða fyrr)

1. Franek Lesiak, Víkingi

2. Úlfur Andrason, Víkingi

3.-4. Sigurður Hrafn Ásgeirsson, KR

3.-4. Agnar Bergmann Stefánsson, HK

 

Karlar og konur 40 ára og eldri

1. Piotr Herman, BR

2. Stefán Orlandi, Selfoss

3. Holger Kuehne, Selfoss

4. Wojciech Cyganik, BH

 

Byrjendaflokkur

1. Sölvi Björn Björnsson, Víkingur

2. Rúrik Heiðar Long, BH

3.-4. Atli Hrafn Helguson Melberg, Víkingur

3.-4. Ingibjörg Halla Gestsdóttir, UMFG

 

“Big table” tvíliðaleikur með forgjöf

1. Magnús Jóhann Hjartarson/Magnús Gauti Úlfarsson, BH

2. Luca De Gennaro Aquino/Skúli Gunnarsson, KR

3.-4. Eiríkur Logi Gunnarsson/Pétur Gunnarsson, KR

3.-4. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir/Helena Árnadóttir, KR