Þrefaldur sigur Prasuns á Íslandsmóti í formum

4. mars 2026

Nú um helgina fór fram Íslandsmót í formum á vegum Taekwondosambands Íslands. KR-ingar áttu nokkra fulltrúa á mótinu, allt frá gulum beltum á sínu fyrsti móti og yfir í svört belti sem keppt hafa í mörg ár. Óhætt er að segja að einn keppandi okkar hafi staðið upp úr, Prasun Tiwari Duwadi, en hann nældi sér í gull í cadet flokki rauðbelta og keppti svo upp fyrir sig í aldri í parakeppni junior rauðbelta þar sem hann nældi sér í annað gull ásamt Bjarti Aðalssteinssyni og í hópakeppni junior rauðbelta nældu Prasun, Bjartur og Erling Kári Freysson sér í enn eitt gullið. Prasun því með fullt hús stiga. Bjartur var efstur inn í úrslit í junior rauðbelta flokki en varð svo 0.03 stigum frá gullinu í úrslitum og fékk því silfur að þessu sinni. Bryndís Eir Sigurjónsdóttir lenti í þriðja sæti í junior svartbeltisflokki en hreppti gull í junior A hópakeppni ásamt stúlkum úr ÍR og Aftureldingu.

 

Þar að auki náði Kiljan Heisterkamp bronsi í stórum flokki cadet drengja með lituð belti og það á sínu fyrsta móti. Daníel Lorenzo Silva Eggertsson, Ólafur Árni Arason og Snævarr Stefánsson náðu sér í brons í hópakeppni í sama flokki og Daníel og Snævarr sömuleiðis með brons í parakeppni. Þá fékk Tómas Bickel gullverðlaun í flokki undir 50 ára með lituð belti.

 

Í stigakeppni félaga telja medalíur í rauð-og svartbeltisflokkum og þrátt fyrir að vera einungis með fjóra keppendur í þeim flokkum náði KR fimmta sæti í stigakeppninni. Glæsilegur árangur og áminning um að gera enn betur á næsta ári!