Kraftur í KR fær viðurkenningu fyrir 2. sætið í Lífshlaupinu!

4. mars 2026

Linda hér til hægri ásamt öðrum verðlaunahöfum.

Kraftur í KR tók þátt í Lífshlaupinu sem fór fram 1. - 28. febrúar og hafnaði í 2. sæti í flokki Hreystihópa 60+ . Við vorum með flestar mínútur og flesta daga í flokki 70-149 liðsmenn! Kraftur í KR hefur stækkað hratt seinustu ár og voru 125 liðsmenn sem tóku þátt í Lífshlaupinu í ár frá okkur.


Verðlaunaafhending var í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í hádeginu í gær, fulltrúar hópsins ásamt Lindu þjálfara tóku við verðlaunum fyrir hönd allra iðkenda Krafts í KR


Til hamingju með þennan glæsilega árangur!

ÁFRAM KR!