Ungir og efnilegir skrifa undir nýjan samning
Þrír ungir og efnilegir leikmenn voru að skrifa undir nýjan samning við KR út árið 2027.

Auðunn Gunnarsson (2008) er uppalinn KR-ingur sem getur spilað allar stöður frá miðju. Auðunn kom inn á í 11-0 sigrinum á KÁ í bikarnum í apríl en það var hans fyrsti leikur fyrir meistaraflokk.

Jón Ernir Ragnarsson (2007) hefur spilað upp alla yngri flokka félagsins og getur leyst flestar stöður á vellinum.

Skarphéðinn Gauti Ingimarsson (2009) er uppalinn í KR og hefur spilað tvo leiki með U15 ára landsliði Íslands. Líkt og Auðunn kom Skarphéðinn Gauti inn á í 11-0 sigrinum á KÁ í bikarnum í apríl en það var hans fyrsti leikur fyrir meistaraflokk.
Til hamingju með samninginn strákar!






