Katla skrifar undir nýjan samning
20. maí 2025

Katla Guðmundsdóttir (2007) hefur skrifað undir nýjan samning við KR út árið 2027! Katla er sóknarmaður sem hóf sinn meistaraflokksferil hjá KR aðeins 15 ára gömul eftir að hafa spilað upp yngri flokka félagsins. Hún á 82 meistaraflokksleiki og hefur í þeim skorað 39 mörk!! Auk þess hefur Katla spilað 13 landsleiki fyrir yngri landsliðin og skorað í þeim 6 mörk!
Katla var markahæst allra í lengjubikarnum í vetur með 11 mörk og er, eins og staðan er núna markahæst í Mjólkubikarnum með 5 mörk!
Til hamingju með samninginn Katla!
