Ásmegin mót SH

8. mars 2026

Sunddeild KR keppti á Ásmegin móti SH um helgina.

Sundfólkið okkar stóð sig frábærlega á mótinu og voru miklar bætingar hjá KR-ingum
Á þetta mót þarf lágmörk en það voru þrír KR-ingar í B hóp að keppa í fyrsta skipti á Ásmegin mótinu og stóðu þær sig glæsilega með bætingar í öllum greinunum sem þær syntu.


Þau sem kepptu um helgina voru:

Arndís Stella

Bríet Björk

Emilý Sóley

Eygló Appoline 

Jón Haukur

Þórður Karl
Viktoria


KR-ingar unnu til þriggja verðlauna á mótinu:

Emilý Sóley -1.sæti í 100 m bringusundi og 3.sæti 200 m flugsundi 

Viktoria  - 3. sæti í 100 m flugsundi


Næsta mót sem Sunddeild KR keppir á er Íslands og unglinga meistaramótið í 50m laug en það er haldið í hafnafirði 27-29 mars

Áfram KR!!!