Auður, Finnur og Hlöðver heiðruð af BTÍ

Á ársþingi Borðtennissambands Íslands þann 10. maí sl., voru þrír KR-ingar heiðraðir fyrir störf þeirra í þágu borðtennisíþróttarinnar. Það voru þau Auður Tinna Aðalbjarnardóttir sem fékk gullmerki BTÍ, Finnur Hrafn Jónsson og Hlöðver Steini Hlöðversson, sem fengu silfurmerki.


Auður Tinna hefur verið formaður BTÍ frá árinu 2022 og var endurkjörin á þinginu til tveggja ára.


Finnur hefur verið ötull við að taka myndir á borðtennisviðburðum, sem hann birtir síðan á netinu og leyfir öllum að nota.



Hlöðver var í stjórn BTÍ í mörg ár og sá að mestu um mótamál sambandsins, en er nú snúinn aftur til félagsins og hefur verið formaður Borðtennisdeildar KR undanfarin ár.