Gestur fékk brons í meistaraflokki á Pepsi móti Víkings
Gestur Gunnarsson fékk bronsverðlaun í meistaraflokki karla á Pepsimóti Víkings. Mótið var haldið í TBR-húsinu þann 31. október. Gestur tapaði í undanúrslitum fyrir Kristjáni Ágústi Ármann úr BH, sem varð í 2. sæti. Magnús Gauti Úlfarsson úr BH sigraði í flokknum.
Finnur Hrafn Jónsson fékk brons í eldri flokki karla. Hann tapaði í undanúrslitum fyrir Guðmundi Erni Halldórssyni, sem skipti nýlega úr KR í BR.
Tveir aðrir KR-ingar kepptu á mótinu en náðu ekki verðlaunasæti.







