Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er íþróttamaður KR. Þórir var fyrirliði KR liðsins á tímabilinu sem leið á sínu öðru tímabili í KR eftir að hann snéri heim eftir dvöl í háskólaboltanum og atvinnumennsku erlendis.
Þórir átti vægast sagt frábært tímabil með KR og var hann valinn á lokahófi KKÍ besti leikmaður Bónus deildar karla auk þess að vera í úrvalsliði deildarinnar. Þórir lék einnig með íslenska landsliðinu í undankeppni HM í körfubolta. Í febrúar leiddi Þórir KR liðið með stakri prýði þegar þeir unnu til bikarmeistaratitils, fyrsta titils KR í körfubolta í 7 ár. Það sem liðið staðfesti endurkomu sína á toppi íslensks körfubolta.







