Mikael Yngvi fékk brons á aldursflokkamóti HK

Mikael Yngvi Ricardoson fékk brons í hnokkaflokki 11 ára og yngri á aldursflokkamóti HK, sem haldið var í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi þann 24. október. Hann tapaði í undanúrslitum fyrir Óðni Hechmann Emilssyni úr HK, sem sigraði í flokknum.


Eingöngu tveir KR-ingar léku á þessu móti.