KR-F sigraði í suðurriðli 4. deildar
10. febrúar 2026
KR-A og KR-B í úrslitakeppni í 1. deild karla

Lokaumferðir í deildakeppni BTÍ voru leiknar í TBR-húsinu helgina 7.-8. febrúar. A- og B- lið KR leika bæði í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla, sem fram fer í apríl. Andstæðingarnir eru Víkingur-A, sem urðu deildarmeistarar og BH-A.
C-lið KR varð í 2. sæti í 2. deild, og leikur umspilsleik við A-lið HK um sæti í 1. deild á næsta keppnistímabili. C-lið BH sigraði í deildinni (sjá mynd).
F-lið KR sigraði í suðurriðli 4. deildar og leikur í úrslitakeppni við lið úr norðurriðli deildarinnar á Akureyri 18. apríl (sjá mynd á forsíðu). Keppni í norðuriðli deildarinnar lýkur í lok mánaðarins.
D- og E-lið KR léku í 3. deild en komust ekki í verðlaunasæti.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
1. deild
BH-B – KR-A 4-6
Víkingur-A – KR-B 3-6
KR-A – HK-A 3-6
KR-B – BH-B 6-0
2. deild
KR-C – BR-A 6-2
BH-C – KR-C 6-3
3. deild
BM – KR-E 6-1
KR-D – BR-B 0-6
KR-E – HK-C 4-6
Víkingur-C – KR-D 0-6 (Víkingur-C mætti ekki til leiks)
4. deild suðurriðill
KR-F – HK-D 4-6
Garpur-A – KR-F 0-6






