Jólahandboltaskóli Gróttu/KR

20. desember 2025

Hinn árlegi jólahandboltaskóli fer fram um hátíðarnar líkt og undanfarin ár. Námskeiðsdagarnir eru fimm talsins og er hægt að skrá sig á staka daga eða allt námskeiðið.

Skólinn er frá 09:00-12:00 og fer fram í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Skólinn er fyrir krakka í 1. - 6.bekk eða krakka fædd 2019-2014. Byrjendur jafnt sem krakkar lengra komin eru velkomin. Við hvetjum stelpur sérstaklega til að taka þátt.

Skráningin fer fram í gegnum Abler en beinn hlekkur er hérna: 
https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NDk4NzM=/