KR Íslandsmeistarar í liðakeppni stúlkna

Íslandsmótið í liðakeppni unglinga, sk. flokkakeppni, fór fram að Laugalandi í Holtum laugardaginn 10. október. KR sigraði tvöfalt í stúlknaflokki 19 ára og yngri. A-lið KR, skipað Guðbjörgu Völu Gunnarsdóttur og Helenu Árnadóttur urðu Íslandsmeistarar og B-lið KR, skipað Mörtu Dögg Stefánsdóttur og Þórunni Erlu Gunnarsdóttur urðu í 2. sæti.

Þetta er fjórða árið í röð sem þær Guðbjörg Vala og Helena verða Íslandsmeistarar. Flokkakeppnin féll niður árin 2021-2023 en þær unnu líka árið 2020 og hafa því ekki tapað í flokkakeppni síðan árið 2019.

Lið KR í flokki pilta 13 ára og yngri varð í 3.-4. sæti, en liðið skipuðu þeir Dalmar Bragi Aronsson og Hilmar Þór Róbertsson.

KR sendi færri keppendur á mótið en oft áður og átti eingöngu lið í þessum tveimur flokkum.