Jólaskemmtun Sunddeildar KR

12. desember 2025

Það var mikið fjör í Sundhöllinni í gær á jólaskemmtun Sunddeildar KR. Iðkendur úr öllum hópum deildarinnar komu saman og skemmtu sér. Fyrst var sundsýning þar sem yngstu iðkendur deildar syntu sína fyrstu 25m í djúpu lauginni og stóðu sig stórkostlega

Síðan var synt í kringum jólatré, sungin jólalög, borðaðar piparkökur og mandarínur og synt skemmtiboðsund.

Sunddeild KR óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs