Nýtt íþróttahús KR tilbúið 2027
3. nóvember 2025
Verktakafyrirtækið Eykt mun byggja nýtt fjölnota íþróttahús KR í Frostaskjóli. Samþykkt var á fundi innkaupa- og framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar á dögunum að gengið verði að tilboði fyrirtækisins sem átti hagkvæmasta tilboðið. Verklok eru áætluð haustið 2027.
Í tilkynningu kemur fram að Reykjavíkurborg sér um uppbyggingu fjölnota íþróttahúss og er kostnaðaráætlun við framkvæmdina um 3,2 milljarðar króna. Fjölnota íþróttahúsið verður um 6.700 fermetrar að stærð. Þar verður um 4.400 fermetra stór íþróttasalur sem nýtist flestum deildum KR. Í húsinu verður gervigrasvöllur þar sem hægt verður að æfa knattspyrnu og keppa mótsleiki í átta manna bolta.
Eins og fram hefur komið stendur nú yfir endurbygging aðalvallar KR. Völlurinn hefur verið lagður gervigrasi, langt komin og lýkur á næsta ári.
KR hefur séð um endurbygginguna á keppnisvellinum í Frostaskjóli og gengið var formlega frá samkomulagi í borgarráð í dag um veitingu fjárstyrks vegna framkvæmdarinnar að upphæð 518 milljón króna. Samtals er því verið að fjárfesta í uppbyggingu íþróttamannvirkja hjá KR fyrir vel á fjórða milljarð króna næstu misseri, að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar er haft eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra að hún sé spennt yfir þessari uppbyggingu.
„Ég samgleðst KR með þá uppbyggingu á aðstöðu sem er hafin. Ég skynja mikinn kraft í félaginu og er sannfærð um að það eru bjartir tímar fram undan í Vesturbænum með þessari uppbyggingu. Það er mikilvægt fyrir Reykjavíkurborg"
Þórhildur Garðarsdóttir, formaður KR, segist hæstánægð með þessa uppbygginguna sem er hafin. „Ég samgleðst öllu KR-samfélaginu með þennan risastóra áfanga. Uppbygging fjölnota íþróttahúss, ásamt endurbótum á aðalvellinum, mun gjörbreyta aðstöðu fyrir iðkendur okkar, sérstaklega yngri flokkanna. Nú eru bjartir tímar fram undan í starfi KR.“






