FRJÁLSAR

FRÉTTIR

Fréttir frá Frjálsíþróttadeild KR

Eftir Sonja Hlín Arnarsdóttir 02 Jan, 2024
Kæru KR-ingar. Í upphafi nýs árs langar mig til þess að þakka fyrir allt það ómetanlega starf sem sjálfboðaliðar félagsins hafa unnið. Við vitum að starfsemi félagsins byggir ekki síst á velvild og þeim samtakamætti sem finna má innan KR fjölskyldunnar. Markmið KR fyrir komandi ár eru sem fyrr skýr, að gera KR að því stórveldi sem það er og hefur verið. Slíkt verkefni er langhlaup. Það vita fáir betur en KR-ingar. En ég heiti því gera það sem í mínu valdi stendur til þess að það takist. Á þessu ári á KR 125 ára afmæli og á því ári munum við taka fyrstu skóflustunguna að nýju húsi. Því miður hefur KR setið eftir, eitt Reykjavíkurfélaganna, þegar kemur að aðstöðumálum, en nú er það forgangsmál að lyfta grettistaki í þeim málum, jafnt sem í viðhaldi og nýframkvæmdum. Með sameiginlegu átaki tekst okkur allt, við höldum kát og full bjartsýni inn í nýtt ár.  Gleðilegt ár kæru KR-ingar og takk fyrir árið sem var að enda. Þórhildur Garðarsdóttir Formaður KR
Eftir Sonja Hlín Arnarsdóttir 22 Nov, 2023
Þann 28. nóvember nk. eru 50 ár frá stofnun KR Kvenna. Af því tilefni verður opið hús í Félagsheimili KR milli kl. 20-22 þann sama dag. Léttar veitingar í boði, söngur og samvera. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Eftir Sonja Hlín Arnarsdóttir 11 Nov, 2023
KR býður öllum iðkendum Grindavíkur endurgjaldslaust á æfingar hjá öllum deildum félagsins. Æfingatöflur má finna á heimasíðu KR undir hverri deild fyrir sig. Hugur okkar er hjá Grindvíkingum á þessum óvissutímum. Við sendum ykkur öllum okkar bestu strauma og baráttukveðjur.
Eftir Sonja Hlín Arnarsdóttir 04 Nov, 2023
Laugardaginn 4. nóv. er aldarafmæli einhvers fræknasta íþróttamanns sem við Íslandingar höfum alið, KR-ingsins Gunnars A. Huseby.  Gunnar var fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í frjálsum íþróttum, með sigri sínun í kúluvarpi á EM í Osló árið 1946. Þar kastaði hann kúlunni 15,56 m, eða 30 cm lengra en næsti maður. Á Evrópumótinu í Brussel 1950, bætti hann um betur er hann varði titil sinn með glæsibrag með 16,74 m kasti, sem var nýtt Evrópumet og nær 1½ m lengra en næsti maður kastaði. Var þetta lengsta kast Gunnars á ferlinum. Á sama móti varð félagi hans Torfi Bryngeirsson Evrópumeistari í langstökki með stökki upp á 7,32 m. Þetta eru enn einu Evrópumeistaratitlar íslendinga í frjálsum íþróttum utanhúss. Gunnar og Torfi voru valdir inn í heiðurshöll ÍSÍ árið 2015. Gunnar átti löngum við áfengisvandamál að stríða sem sem olli því að hann komst ekki til keppni á Ólympíuleikum. Um síðir tókst honum þó að vinna bug á fíkn sinni, og var eftir það dugmikill leiðbeinandi í AA-samtöknum. Gunnar lést þann 28. maí 1995.
Eftir Sonja Hlín Arnarsdóttir 26 Oct, 2023
Á fundi sameiginlegrar byggningarnefndar KR og Reykjavíkurborgar síðastliðinn þriðjudag var tekið stórt skref í uppbyggingu fjölnota íþróttahús á KR svæðinu. Borgin hefur nú samþykkt að hefja forval þar sem kallað er eftir aðkomu verktaka að framkvæmdum við húsið. Forvalið fer fram í nóvember og að því loknu fá 4-5 verktakar afhent útboðsgögn er grundvallar tilboð þeirra í verkið. Mun þá byggingarnefnd yfirfara tilboð og að óbreyttu taka hagstæðasta tilboði.  Verkið verður eins og áður hefur komið fram unnið í svokölluðu alútboði þar sem lokahönnun og framkvæmd er á hendi sama aðila. Hér er um stórt skref að ræða og ljóst að það styttist í að framkvæmdir hefjist á svæðinu.
Eftir Sonja Hlín Arnarsdóttir 19 Oct, 2023
Nú er hægt að kaupa samlokukort á Sportabler. Samlokukortin er geymd í afgreiðslu KR á nafni barnsins. Hvert samlokukort er með 10 samlokum. Hægt er að kaupa samlokukortin hér
Lesa meira
Share by: