SUND

FRÉTTIR

Fréttir

Eftir Gunnar Egill Benonýsson 8. mars 2026
Sunddeild KR keppti á Ásmegin móti SH um helgina. Sundfólkið okkar stóð sig frábærlega á mótinu og voru miklar bætingar hjá KR-ingum Á þetta mót þarf lágmörk en það voru þrír KR-ingar í B hóp að keppa í fyrsta skipti á Ásmegin mótinu og stóðu þær sig glæsilega með bætingar í öllum greinunum sem þær syntu. Þau sem kepptu um helgina voru: Arndís Stella Bríet Björk Emilý Sóley Eygló Appoline Jón Haukur Þórður Karl Viktoria KR-ingar unnu til þriggja verðlauna á mótinu: Emilý Sóley -1.sæti í 100 m bringusundi og 3.sæti 200 m flugsundi Viktoria - 3. sæti í 100 m flugsundi Næsta mót sem Sunddeild KR keppir á er Íslands og unglinga meistaramótið í 50m laug en það er haldið í hafnafirði 27-29 mars Áfram KR!!!
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 24. febrúar 2026
Aðalfundur sunddeildar KR verður haldinn í frostaskjóli 5 mars klukkan 19:00. Við hvetjum alla til að mæta og hjálpa okkur að gera frábæra deild ennþá betri
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 17. febrúar 2026
Gullmót KR fór fram í nítjánda skipti í laugardalslaug 13-15 febrúar, um er að ræða fjölmennasta sundmót ársins og voru mikil fagnaðarlæti og fjör í lauginni. Alls tóku þátt 426 keppendur frá 20 íþróttafélögum Það voru teknar 2050 stungur og synt 63 boðsund yfir helgina. KR – superchallenge fór fram á laugardagskvöldið en það er gífurlega skemmtileg útsláttar keppni í 50 metra flugsundi með ljósasýningu, tónlist og tilheyrandi látum Sigurvegarar KR Superchallenge Karla voru: 1. Sæti Birnir Freyr Hálfdánarsson frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hann synti á tímanum 25.11 sekúndum 2. Sæti Rynhardt Steyn frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hann synti á tímanum 25.82 sekúndum 3. sæti Hólmar Grétarsson frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hann synti á tímanum 25.99 sekúndum Sigurvegarar KR Superchallenge kvenna voru: 1. Sæti Vala Dís Cicero frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hún synti á tímanum 27.54 sekúndum 2. Sæti Ylfa Lind Kristmannsdóttir frá Sunddeild Ármanns en hún synti á tímanum 28.21 sekúndum 3. Sæti Nadja Djurovic frá Sundfélagi Hafnafjarðar en hún synti á tímanum 28.48 sekúndum Óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn Það er ekki hægt að halda sundmót án aðstoðar sjálfboðaliða sem gengdu ýmsum störfum um helgina og viljum við þakka þeim innilega fyrir þeirra frábæru störf Myndir af Gullmóti KR 2025 verða birtar inná facebook síðu KR og facebook síðu Gullmótsins https://www.facebook.com/krsund https://www.facebook.com/gullmot
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 26. janúar 2026
Sunddeild KR keppti sem partur af sameinuðu liði Reykjavíkur á Reykjavík International Games um helgina. KR- ingar stóðu sig frábærlega og bættu sína bestu tíma í öllum greinum sem þau syntu Helstu tíðindi voru að Þórður Karl Steinarsson keppti til úrslita í bæði 100m skriðsundi og 50m skriðsundi
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 30. desember 2025
Stjörnuljósa sund Sunddeildar KR fór fram í Vesturbæjarlaug í gærkvöldi. Það var mikil gleði og fjör hjá öllum iðkenndum og sundlaugargestum í lauginni. Sunddeild KR óskar öllum Gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða. Áfram KR!!!
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 12. desember 2025
Það var mikið fjör í Sundhöllinni í gær á jólaskemmtun Sunddeildar KR. Iðkendur úr öllum hópum deildarinnar komu saman og skemmtu sér. Fyrst var sundsýning þar sem yngstu iðkendur deildar syntu sína fyrstu 25m í djúpu lauginni og stóðu sig stórkostlega Síðan var synt í kringum jólatré, sungin jólalög, borðaðar piparkökur og mandarínur og synt skemmtiboðsund. Sunddeild KR óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 10. desember 2025
Sunddeild KR tók þátt á Jólamóti Ármanns 6-7 desember. KR-ingar stóðu sig glæsilega og endaði mótið á skemmtilegu Jólaboðsundi þar sem öllum keppendum mótsins var skipt í boðsundsveitir og þurftu krakkarnir svo að synda með Jólasveinahúfu á höfðinu sem þurfti að afhenda næsta sundmanni áður en að viðkomandi mátti fara á stað. Helstu úrslit af mótinu voru: Pétur Viðar Arnórsson 2 sæti í 100m skriðsundi og 3 sæti í 50m skriðsundi Emilý Sóley P M Eysteinsdóttir 2 sæti í 50m flugsundi, 2 sæti í 100m flugsundi, 3 sæti í 200m flugsundi og 3 sæti í 100m fjórsundi Bríet Björk Jóhannsdóttir 3 sæti í 200m bringusundi Viktoría Vasile 1 sæti í 100m flugsundi og 1 sæti í 200m flugsundi
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 24. nóvember 2025
Fjör í Kópavogslaug um helgina
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 10. nóvember 2025
Íslands- og unglingameistaramótið í 25m laug var haldið í laugardalslaug helgina 7-9 nóvember. Sunddeild KR keppti sem partur af sameinuðu liði Reykjavíkur. Sunddeild KR var með 4 keppendur á mótinu. · Emilý Sóley P M Eysteinsdóttir · Þórður Karl Steinarsson · Viktoria Vasile · Jón Haukur Þórsson Öll stóðu þau sig glæsilega um helgina. Áfram KR!!!
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 20. október 2025
A hópur Sunddeildar KR tók þátt Cube móti SH 18-19 október. Miklar bætingar hjá okkar sundfólki og það bættust við fleiri lágmörk í Íslandsmeistara mótið sem verður haldið í laugardalslaug 7 - 9 nóvember  Verðlaunahafar helgarinnar voru: Aldís Ögmundsdóttir - 3 sæti í 100m flugsundi 16-17 ára Emilý Sóley P M Eysteinsdóttir - 1 sæti í 100m flugsundi 13 ára og yngri, 3 sæti í 200m fjórsundi 13 ára og yngri Benedikt Bjarni Melsted - 3. sæti í 100m fjórsundi 16-17 ára J ón Haukur Þórsson - 2. sæti í 100 m flugsundi 16-17 ára
Lesa meira