BORÐTENNIS
FRÉTTIR

Á ársþingi Borðtennissambands Íslands þann 10. maí sl., voru þrír KR-ingar heiðraðir fyrir störf þeirra í þágu borðtennisíþróttarinnar. Það voru þau Auður Tinna Aðalbjarnardóttir sem fékk gullmerki BTÍ, Finnur Hrafn Jónsson og Hlöðver Steini Hlöðversson, sem fengu silfurmerki. Auður Tinna hefur verið formaður BTÍ frá árinu 2022 og var endurkjörin á þinginu til tveggja ára. Finnur hefur verið ötull við að taka myndir á borðtennisviðburðum, sem hann birtir síðan á netinu og leyfir öllum að nota. Hlöðver var í stjórn BTÍ í mörg ár og sá að mestu um mótamál sambandsins, en er nú snúinn aftur til félagsins og hefur verið formaður Borðtennisdeildar KR undanfarin ár.

Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir sigraði í kvennaflokki á lokamóti BTÍ og Gullfisks, sem fór fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi föstudaginn 8. maí. Til keppni var boðið 8 stigahæstu leikmönnunum í karla- og kvennaflokki að loknum fjórum mótum í mótaröðinni á keppnistímabilinu. KR átti þrjár efstu í kvennaflokki, því Þórunn Erla Gunnarsdóttir varð í 2. sæti og Helena Árnadóttir í 3. sæti. KR átti einn verðlaunahafa í karlaflokki, því Lúkas André Ólason varð fjórði. Verðlaunahafar: Opinn flokkur kvenna 1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR 2. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR 3. Helena Árnadóttir, KR 4. Magnea Ólafs, BM Opinn flokkur karla 1. Magnús Jóhann Hjartarson, BH 2. Óskar Agnarsson, HK 3. Kristján Ágúst Ármann, BH 4. Lúkas André Ólason, KR

A-lið KR lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna við lið Víkings laugardaginn 25. apríl. Víkingskonur sigruðu í leiknum 4-0 og eru Íslandsmeistarar. Lið KR-A skipuðu þær Aldís Rún Lárusdóttir, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir og Helena Árnadóttir en einnig lék Sól Kristínardóttir Mixa með liðinu í vetur. Það má segja að þessi dagur hafi verið "stöngin út" fyrir KR, því allar tæpar lotur í leiknum töpuðust. C-lið KR, sem varð í 2. sæti í 2. deild karla lék umspilsleik við A-lið HK, sem hafnaði í næstneðsta sæti í 1. deild karla. HK-A sigraði 4-1 en athygli vakti að Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir sigraði sterkasta leikmann HK 3-0. KR mun engu að síður eiga tvö lið af sex í 1. deild karla á næsta keppnistímabili, en C-KR leikur áfram í 2. deild. D-lið KR lék umspilsleik um sæti í 3. deild á næsta keppnistímabili við D-lið HK. HK-D vann 4-1. KR mun samt eiga lið í 3. deild á næsta keppnistímabili því E-lið KR hélt sæti sínu í deildinni.













